- Ísland verði umhverfisvænt og sjálfbært með réttláta og heiðarlega stjórnsýslu. Að allir hafi tækifæri til að nema og starfa eftir áhuga og getu.
- Þjóðfélag sem byggir á réttlæti, jafnrétti og sjálfbærri nýtingu auðlinda og hefur að leiðarljósi öflugt, skilvirkt og réttlátt mennta- og heilbrigðiskerfi
- land lýðræðis - gegnsæis. Áhersla á góða menntun, atvinnu fyrir alla og virka þátttöku í alþjóðasamfélagi. Sjálfbærri nýtingu en virðingu fyrir náttúrunni
- Við viljum að íslenskt samfélag byggi á samfélagslegri ábyrgð og velferð fjölskyldunnar, sé náttúruvænt, sjálfbært og virðing borin fyrir reynslu
- Sjálfbært þjóðfélag með jöfn tækifæri og gegnsægri stjórnsýslu, þar sem hæfileikar allar fá að njóta sín í menntun og nýsköpun og náttúruauðlindir eru nýttar á skynsaman hátt
- Á Íslandi ríkir stöðugleiki í efnahagsmálum, einstaklingar eru meðvitaðir um ábyrgð sína og skyldur og auði og auðlindum þjóðarinnar deilt með sanngjörnum hætti
- Við viljum hafa fjölbreytta menntun fyrir alla, að við skilum landinu í betra ástandi til framtíðar og þekkjum og metum styrkleika og veikleika landsog þjóðar
- Framsækið, skapandi og mannvænt samfélag, byggt á menntun, fjölbreyttu atvinnulífi og hreinu umhverfi sem grundvallast á tjáningafrelsi og jafnrétti
- Stjórnsýsla á að verða skilvirk og gagnsæ. Fyrirgreiðslupólitík tilheyri sögunni. Heilsufrelsi. Sterkt heilbrigðiskerfi m.forvarnir og fræðslu að leiðarljósi,óháð efnahag. Fjölbreytt opin menntun við allra hæfi óháð efnahag.
- Við erum sjálfstæð lífsglöð þjóð sem byggir á þekkingu, fjölbreyttri menningu, ber virðingu fyrir og verndar íslenska náttúru,eigum heilbrigðisþjónustu á heimsvísu og erum fyrirmynd menntunar í heiminum.
- Með jákvæðu viðhorfi mun Ísland verða leiðandi í umhverfis-, heilbrigðis- og atvinnumálum. Íslendingar standi vörð um sínar auðlindir.
- Samfélag þar sem þjóðvernd, virðing og félagsleg gildi eru höfð að leiðarljósi, með menntun fyrir alla og börnin í fyrirrúmi.
- Velferðarþjóðfélag sem byggir á jafnrétti og frelsi til athafna og vinnu, þar sem fjölskyldan er hornsteinn og kjölfesta samfélagsins.
- Ísland verði vistvænt samfélag sem byggir á gagnsærri stjórnsýslu með bættum lífsgæðum sem einkennast af minna kapphlaupi og atvinnu fyrir alla.
- Til að réttlát lífskjör náist fyrir framtíðar kynslóðir þarf að greiða ICESAVE skuldbindingar úr lífeyrissjóðum landsmanna strax og samhliða kjósa einstaklinga í stað flokka til forystu.
- Lítið kröftugt land velferðar og tækifæra án eiturlyfja með öflugt atvinnulíf og lága skatta sem byggir á öflugu menntakerfi, virðingu fyrir náttúrunni og virku eftirliti.
- Kærleiksríkt og hamingjusamt samfélag þar sem allir hafa sömu tækifæri og gæði landsins og mannauður eru nýtt á sjálfbæran hátt.
- Velferðarsamfélag þar sem fjölskyldan og náttúran eru í fyrirrúmi. Allir hafi jafnan aðgang að þekkingu, náttúruauðlindum og hamingju.
- Alþjóðleg og opið nýsköpunarsamfélag með ríka samfélags- og umhverfisvitund og áherslu á ómengað umhverfi og efnahagslega velferð.
- Fjölskylduvænt og skapandi samfélag sem byggir á atvinnnuuöryggi og heilbrigði, þar sem virðing er borin fyrir náttúru og menningu,
- Við viljum að ísland verði frjálst, opið, framsækið og réttlátt þjóðfélag sem tryggir öllum atvinnu, treystir á jöfnuð, umburðalyndi og leggur áherslu á gildi fjölskyldunnar, einkum börnin.
- Sjálfbært, opið