Um áramót lítur maður oft um öxl og endurskoðar einhverja þætti í sínu lífi.
Þennan inngang skrifaði ég fljótlega eftir áramót og er búinn að vera á leiðinni í að halda áfram með þetta síðustu vikur. Það hefur ekki gengið betur en þetta.
Kannski að ég endurskoði bara þessa síðu eitthvað; hvað og hvenær ég er að setja eitthvað hér inn. Sé til. Gef twitter straumnum kannski hærra undir höfði hér þar sem ég er mikið duglegri þar. Þú ættir auðvitað að fylgja mér þar.
Áramótaheitin eru nú engar brjálaðar fullyrðingar. Reyna að eldast bara um hálft ár, með aðstoð hollara fæði og góðri hreyfingu. Þroskast um tvö ár með góðum bókum og æfingum. Og ferðast. Mig langar svakalega að fara í langt ferðalag á þessu ári. Hvort það verði eitthvað út fyrir landssteinana veit ég ekki.
Þegar maður sér svona myndbönd áttar maður sig á hvað maður er að fara á mis við. Skellið þessu í “full screen” og njótið.
Ég átti frábær jól í Skagafirði með fjölskyldunni. Byrjaði á að renna til Akureyrar þar sem Bylgja systir var að jafna sig eftir aðgerð. Keypti jólagjafirnar þar í bænum og var síðan á Hofsósi alla síðustu viku og lét stjana við mig.
Tók fullt af myndum. Nánast allar af snillingnum Camillu Líf. Fer yfir þær fljótlega og kem fyrir á flickr. Hér er annars smá sýnishorn. Smellt á myndirnar til að sjá fleiri.