Jólalagatal 2009 – {18/24}
Lag #18 í Jólalagatalinu.
Smá King sál. Back Door Santa.
Lag #18 í Jólalagatalinu.
Smá King sál. Back Door Santa.
Eins og ég skrifaði á síðuna hjá Elvari þá hef ég fengið jólagjöfina mína í ár. Elvar tók sig til og skrifaði bloggfærslu!
Síðan er Bylgja búin að vera fáránlega dugleg í einhverri matarhreinsun og skrifar um hvern dag á nýrri síðu.
Gamli sendi mér mynd sem hann tók sennilega í morgungöngunni í morgun af lauginni á Hofsósi. Svakalegur lúxus verður það þegar þetta er klárt. Það verða þétt setnir bakkarnir á næstu Jónsmessu.
Í sumarfríinu í byrjun ágúst skellti ég saman grunni vefsins kauptu.is sem ég setti svo í loftið í gær. Vefurinn safnar saman smáauglýsingum af helstu vefum landsins og gefur gestum möguleika á að leita í auglýsingasafninu. Eiginleikum kauptu.is á eftir að fjölga með tímanum en nú, þegar leitin er farin að skila niðurstöðum, er hann [...]
Mikið er veðrið búið að vera stórkostlegt hérna á suðurhlutanum. Ef það hefði einhverntímann verið málið að taka sér mánuð í sumarfrí hefði það verið júlí þetta árið. Einhverra hluta vegna er mér samt búið að takast að vera með vott af hálsbólgu allan tímann.
Hver eru einkenni svínaflensunnar aftur?
Fékk sendar myndir að norðan frá því þegar kafteininum tókst að tapa 35 tonna karfapoka aftanúr dallinum í síðasta túr.
Ég fór norður um helgina í skírn hjá Camillu Líf Bylgju systur og Hjörvars. Litla skvísan er núna loksins komin með nafn.
Camilla Líf
Var að átta mig á hvað blár er svakalega yfirgnæfandi litur hérna á síðunni hjá mér.
Er það gott eða slæmt, svona í ljósi komandi kosninga?
Kann að meta þetta veður sem er búið að vera hérna í borginni. Svakalegt frost, logn og svakalega hvítt allt þar sem það snjóaði líka heil ósköp. Búinn að taka upp myndavélina eitthvað og skellti nokkrum inná flickr.