Browsing archives for 'Lífið'

Gleðileg ár, það er komið tuttugu tíu

Lífið,Síðan 14 January 2010 | 0 Comments

Um áramót lítur maður oft um öxl og endurskoðar einhverja þætti í sínu lífi. Þennan inngang skrifaði ég fljótlega eftir áramót og er búinn að vera á leiðinni í að halda áfram með þetta síðustu vikur. Það hefur ekki gengið betur en þetta. Kannski að ég endurskoði bara þessa síðu eitthvað; hvað og hvenær ég [...]

Ljómandi jól í Skagafirði

Lífið,Myndir 29 December 2009 | 1 Comment

Ég átti frábær jól í Skagafirði með fjölskyldunni. Byrjaði á að renna til Akureyrar þar sem Bylgja systir var að jafna sig eftir aðgerð. Keypti jólagjafirnar þar í bænum og var síðan á Hofsósi alla síðustu viku og lét stjana við mig. Tók fullt af myndum. Nánast allar af snillingnum Camillu Líf. Fer yfir þær fljótlega [...]

Tagged in , , ,

This is it!

Lífið 2 November 2009 | 0 Comments

Á föstudaginn átti ég enn eitt afmælið. Þar sem ég var nýkominn úr góðri ferð til Danmerkur var ekkert haldið uppá það sérstaklega, gleymdi mér meira að segja í vinnunni töluvert fram á kvöld og varð því dagurinn lítið frábrugðinn öðrum. Um helgina var síðan slappað svolítið af enda ennþá að komast í gang eftir [...]

Kóngsins Köben

Lífið 2 November 2009 | 1 Comment

Það verður ekki annað sagt en að þessi Danmerkur för mín hafi verið vel heppnuð. Ég lenti hjá Balla rétt fyrir miðnætti á fimmtudeginum en eftir ansi langa ferð var eftir orka í rétt svo einn eða tvo bjóra svo það var lítið gert af sér það kvöldið. Þau skötuhjú hafa það ansi gott í [...]

Tagged in , ,

Að rabba við Baunverja

Lífið 22 October 2009 | 1 Comment

Uppúr klukkan 4 í morgun hringdi ég í Jóa Mola og reif hann á lappir. Ég hafði platað hann til að keyra mig út á keflavíkurvöll eftir takmarkaðan nætursvefn. Uppúr 7 var ég steinsofandi í tugþúsund feta hæð yfir atlandshafinu á 700km hraða í átt til Kaupmannahafnar. Ég var varla stiginn frá borði frá flugvélinni [...]

Tagged in ,

Nýtt stofustáss

Lífið 28 August 2009 | 2 Comments

Mér fannst stofan heima eitthvað svo tómleg, svo ég keypti mér trommusett.

Tagged in

Ættarmót á vestfjörðum

Lífið,Myndir 30 July 2009 | 1 Comment

Á föstudaginn flaug ég vestur til Ísafjarðar til að mæta á ættarmót. Ég þóttist ætla að vera duglegur að taka eitthvað af myndum. Þær urðu 5 á vélina mína. Tók síðan eitthvað á vélina Bylgju systur. Ekki merkilegur árangur. Þarf virkilega að fara að gera eitthvað í þessu myndatökuleysi hjá mér. Næsta helgi er svo [...]

Tagged in ,

Til hamingju, mamma.

Ísland,Lífið 22 July 2009 | 1 Comment

Hún elskulega móðir mín á afmæli í dag. Óska henni hjartanlega til hamingju með daginn. Ég heyrði í henni í morgun, staddri á Flókalundi á vestfjörðum. Heyrði líka í Sonju sem fannst miklu merkilegra að hafa verið í nágrenni Bjarkalundar (úr Dagvaktinni) fyrr um daginn. Megnið af hersingunni er á leið á ættarmót fyrir vestan [...]

Tagged in ,

Klettaklifur

Lífið 2 July 2009 | 0 Comments

Síðustu tvö kvöld er ég búinn að príla alveg heil ósköp. Fyrir nokkrum vikum rambaði ég inn á heimasíðuna hjá Klifurhúsinu og sá að þeir eru með námskeið í klettaklifri. Við Viddi slógum til og fórum á þriðjudagskvöldið í Klifurhúsið þar sem Hjalti tók á móti okkur og kenndi okkur helstu handtökin og á búnaðinn [...]

Tagged in ,

Flensa eftir hafið

Lífið 25 June 2009 | 2 Comments

Ég er búinn að hafa það frekar ömurlegt hér heima í vikunni, sennilega eftir allan sjóinn fyrir norðan, með kvef, hálsbólgu og vott af hita. Skilst reyndar að fleiri hafi komið hóstandi heim að norðan þrátt fyrir að hafa ekkert farið í sjóinn – svo ég nota það sem einhverskonar huggun um að þetta hafi [...]

Tagged in ,