Browsing archives for 'Ísland'

Dúndurfréttir á fimmtudaginn

Lífið, Ísland 1 May 2010 | 0 Comments

Ég skrapp á tónleika með Dúndurfréttum á fimmtudaginn. Suddalega góðir. Ég er ekkert hissa á að Rolling Stone Magazine segi þá „The best Pink Floyd, Led Zeppelin cover band ever.“
Rakst á myndbönd á youtube frá þessum tónleikum.

Tagged in ,

Lætin í kringum Óla forseta

Ísland 21 April 2010 | 0 Comments

Umræðan um áhrif ummæla Ólafs Ragnars á ferðaþjónustuna virðist í megindráttum snúast á tvo vegu. Að hann sé að sinna almannavarnahlutverki erlendra ríkja – eða að hann sé að stórskaða ferðaþjónustuna hér innanlands.
Baldur tekur þetta vel saman og fær fína umræðu í framhaldi af því.
Mig langaði rétt að birta mynd af athyglinni sem Ísland er að [...]

Tagged in , ,

Flottasta auglýsing í heimi?

Ísland 20 April 2010 | 0 Comments

Tagged in , , ,

Sparisjóð Skagafjarðar á Hofsós

Ísland 8 February 2010 | 0 Comments

Það er í gangi undirskriftasöfnun til að hvetja Sparisjóð Skagafjarðar til að opna afgreiðslu á Hofsósi eftir að Arion banki lokaði sinni. Að sjálfsögðu þarf bankaútibú í bæ sem er í stöðugri sókn einsog Hofsós er!
Skrifaðu því undir:
http://skagafjordur.net/hofsos/

Gögn frá þjóðfundinum

Pólitík, Vefsmíði, Ísland 20 November 2009 | 0 Comments

Eftir að fyrstu gögn þjóðfundarins fóru að koma út á netið um síðustu helgi skellti ég upp lítilli síðu sem birti bæði gildi og framtíðarsýn fundargesta. Tengill á þessa litlu síðu mína endaði inná eyjan.is svo þúsund manns skoðuðu herlegheitin. Finnur Gommit frændi var yfir tæknimálum fundarins og smíðaði m.a. kerfið sem vistar öll gögnin [...]

Óvinafagnaður og Ofsi

Bækur, Ísland 27 July 2009 | 0 Comments

Í síðustu viku las ég bókina Óvinafagnaður, eftir Einar Kárason. Bókina kláraði ég sitjandi afturí húsbílnum pabba, akandi milli Ísafjarðar og Núps í Dýrafirði. Í bókinni er fjallað um ferðir Þórðar Kakala um Ísland í hefndarhug eftir að Kolbeinn ungi og Gissur Þorvaldsson hafa drepið föður hans og bræður í Örlygsstaðarbardaga. Þegar líður á söguna [...]

Til hamingju, mamma.

Lífið, Ísland 22 July 2009 | 1 Comment

Hún elskulega móðir mín á afmæli í dag.
Óska henni hjartanlega til hamingju með daginn. Ég heyrði í henni í morgun, staddri á Flókalundi á vestfjörðum. Heyrði líka í Sonju sem fannst miklu merkilegra að hafa verið í nágrenni Bjarkalundar (úr Dagvaktinni) fyrr um daginn. Megnið af hersingunni er á leið á ættarmót fyrir vestan þar [...]

Tagged in ,

Framtíðarsýn Íslands og lausn efnahagsvandræða okkar

Pólitík, Ísland 28 April 2009 | 0 Comments

Allir sem hafa minnst áhuga á framtíð Íslands ættu að gefa sér klukkutíma og horfa á tvö myndbönd frá Hugmyndaráðuneytinu. Það er fátt sem maður sér í pólitíkinni eða á vinnumarkaðnum á Íslandi í dag sem færir mann jafn mikla bjartsýni og þegar maður heyrir þetta háleitar hugmyndir.
Fyrsti hluti: Mikilvægi þess að vita fyrir [...]

Tagged in ,