Ægir Finnsson » Bækur

Bókað minni
Fyrir einu til tveimur árum fór ég að venja mig á að skrifa hjá mér hluti. Ekki bara það sem ég þurfti að muna að væri framundan, heldur að reyna að koma því sem er að hugsa um niður á blað. Þetta hafa verið allt frá hugmyndum að vefsíðum til matarinnkaupalista og hef ég ekkert nema gott um þetta að segja. Það er bæði gaman að eiga þetta síðar meir, geta grafið upp gamlar hugmyndir sem auðveldara er orðið að framkvæma eða maður finnur einhvern nýjan vinkil á þeim. Það getur síðan líka haft fín áhrif á svefninn, sofna fyrr þegar maður hefur komið hlutunum frá sér.

Ég hef átt margar stílabækur í gegnum árin eftir tilraunir mínar til skólasóknar – og hef verið að krota í þær á milli enskustíla og íslenskra ritgerða. Ég fór síðan í fyrsta skiptið í Pennann í gær og fann mér tvær flottar bækur, önnur til að skrifa hjá sér punkta og plön og svo aðra sem þægilegt er að teikna í – uppköst að heimasíðum, notendaviðmót o.fl.

Það er síðan ekki að spyrja að verðlaginu hér á Íslandi þessa dagana, bækur sem ég var sáttur við kostuðu helling. Fyrstu punktarnir í bækurnar urðu því að spara og eyða ekki pening í vitleysu (einsog einhverjar stílabækur)!

Óvinafagnaður og Ofsi
Í síðustu viku las ég bókina Óvinafagnaður, eftir Einar Kárason. Bókina kláraði ég sitjandi afturí húsbílnum pabba, akandi milli Ísafjarðar og Núps í Dýrafirði. Í bókinni er fjallað um ferðir Þórðar Kakala um Ísland í hefndarhug eftir að Kolbeinn ungi og Gissur Þorvaldsson hafa drepið föður hans og bræður í Örlygsstaðarbardaga. Þegar líður á söguna eru Þórður og hans menn, flúnir út á vestfirði og halda á skipi út fyrir Hornstrandir og lenda í einu sjóorrustunni sem háð hefur verið við strendur Íslands, úti á Húnaflóa. Það jók töluvert á mátt sögunnar að vera sjálfur á ferð þarna á vestfjörðum þegar maður las um þessar svaðilfarir. Þegar menn riðu landshorna á milli á hestum í öllum veðrum.

Óvinafagnaður og Ofsi

Vikuna á undan las ég Ofsa, sem er önnur bókin í þessari ritröð Einars. Sú saga gerist á eftir Óvinafagnaði svo ég tók þetta í öfugri röð, en nú á maður báðar sögurnar og getur rennt í gegnum þetta seinna í réttri tímaröð. Ofsi fjallar um það þegar Gissur Þorvaldsson kemur aftur frá Noregi og vill að friður komist á á Íslandi eftir áralangan ófrið við erkióvinur sína, Sturlungana. Eftir að Þórður Kakali hefur náð völdum af Kolbeini Unga eftir sjóorrustuna miklu. Báðar bækurnar ættu að vera skyldulesning, allavega Ofsi í Skagfirskum skólum. Stórskemmtilegt að lesa um þessa merku atburði sem gerðust hér fyrr á öldum. Það að þekkja til örnefna og bæjarnafna í Skagafirði auðveldar síðan ímyndunaraflinu svo um munar að sjá fyrir sér atburðina. Þegar menn ríða yfir Öxnadalsheiði, segja frá aðdraganda og sjálfri Flugumýrarbrennu. Ekki skemmir frásagnarstíll persóna Einars Kárasona, en frásögnin gerir lesturinn að meiriháttar skemmtun.