
Reykjavík séð ofan af Esjunni
Eftir að hafa búið við og horft á þennan “hól” í rúm 10 ár hérna í Reykjavík lét ég loksins verða af því að ganga á Esjuna í gær. Við Viddi brunuðum þangað eftir vinnu og vorum tæpan klukkutíma upp að Steini. Ferðin upp tók ekkert voðalega á þrátt fyrir að við létum vaða á bröttustu leiðina upp – en vandamálin fóru ekki að koma í ljós fyrr en á leiðinni niður.
Eftir tvö skref niður á við áttaði ég mig á því að ég þarf að styrkja hnéin mun meira ásamt því að háma í mig meira af Lýsi og öðrum olíum til að smyrja þetta allt saman.
Núna þarf bara að gera þetta að reglulegum viðburði og þá kemur þetta allt.
Google Maps
Endomondo
Ef þú átt síma með viti áttu að setja upp Endomondo og fara út að hreyfa þig. Og gerast vinur minn þar.




