Fyrir ári síðan lét ég gamlan draum rætast og fór í gegnum ferlið að útvega mér byssuleyfi. Síðan reyndar leið tæpt ár áður en ég fór að ræða við Sigga hjá HISS um að útvega mér byssu til að sökkva mér í sportið, en forláta Rússnesk Baikal tvíhleypa varð fyrir valinu.
Núna um helgina renndi ég síðan norður til að prófa gripinn almennilega.
Það er margt verra en að vera komin smá spöl upp í fjall í Skagafirði þegar sólin er að skríða upp á laugardagsmorgni. Leiðindar rok varð reyndar til þess að úr varð bara lítil og algjörlega fuglalaus fjallganga – þar sem ég uppgötvaði skort á eigin þoli frekar en nokkuð annað – ásamt smá skotæfingu á aumar fljúgandi plastflöskur.
Úr varð reyndar að nú er maður algjörlega kominn með bakteríuna. Næstu helgi er rjúpan friðuð svo maður hefur tvær vikur til að stilla brettið í ræktinni í hæstu stillingu, eða að láta vaða á Esjuna og reyna að útvega sér smá þol.
Það versta við ferðina voru síðan djöfulsins fuglarnir sem dirfðust að láta sjá sig á lóðinni hjá okkur, klukkutíma eftir að ég var kominn heim úr fjallinu.

Í garðinum heima
Djöfull skal ég ná ykkur næst!







Hahahahaha, mér finnst þetta frábært blogg !!!!
blooooooooooooooggggggggghhhh