Myndir í gegnum árin

Lífið 9 June 2010 | 0 Comments

Þeir sem muna eftir mér fyrstu árin hérna í Reykjavík, muna eflaust eftir hvað ég var duglegur með myndavélarnar. Í dag, eftir 9 ár, er ég ótrúlega ánægður með þessa áráttu mína. Magnið af myndum er æðislegt og veit ég hreinlega ekki hvernig ég á að snúa mér í að koma þessu fyrir á netinu til að aðrir geti notið þessa safns. Þetta er ennþá út um allt hjá mér svo ég á eftir að finna mér tíma til að taka þetta allt saman.

Flestar eru myndirnar teknar þegar fólk er í glasi og því óvíst hversu vinsæll ég yrði ef ég birti þetta allt á opinni vefsíðu. Að ég tali nú ekki um Facebook. Sama á við um öll myndböndin.

Við erum að tala um nokkrar Jónsmessuhátíðir á Hofsósi, bíladagaferðir og verslunarmannahelgar á Akureyri, ófá partý á Tryggvagötunni og margt margt fleira.

Hér kemur pínulítið sýnishorn.

Verslunarmannahelgi á Akureyri

Binni og Gísli ferskir á Akureyri

Jói með skrúðgöngu

Haukur og Sæunn í einni Salou ferðinni

Hópurinn í annarri Salou ferðinni

Halli hress á Jónsmessu

Jói og Gunni í skipasundi

Partý á Tryggvagötunni

Í Kirkjugötunni á Jónsmessu

Fjör í bænum

Fjör á Glaumbar

Á leið til Akureyrar

Steggjunin Hauks

Valur og Viddi á Tapas

Diddi, Valur og Friðgeir - aftur á Tapas

Leave a Reply