Þyrluflug og eldgos
Fyrir viku síðan bauð vinnan mér og samstarfsfólki mínu í útsýnisflug upp að eldstöðvunum í Eyjafjallajökli. Flogið var af stað frá Hótel Rangá rétt rúmlega 17.00 á miðvikudaginn með þeim landsfræga þyrluflugmanni Jóni Spaða sem átti heldur betur eftir að standa undir nafni í heimferðinni.
Ferð með svona apparati fyrir jafn tækjaóðan einstakling og adrenalínfíkil og mig gerði þessa ferð engi annarri líkri. Flugið uppeftir tók 10-15 mín. og lentum við fyrir miðjum hól sem hálftíma síðar var að hluta til rifinn í sundur af nýju sprungunni sem opnaðist þarna um kvöldið 30-40 metrum frá staðnum sem við stóðum á.
Það er frekar sérstakt að sjá svona eldfjall í návígi. Þótt maður sé í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð á maður erfitt með að átta sig á stærðinni á þessu. Grjóthnullungar spýtast þarna upp á þvílíkum ógnarkrafti að í flugi þeirra niður aftur virðast þeir svífa hægt og rólega – en þá er það bara vegalengdin niður sem er að blöffa mann.
Flugið til baka er síðan eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert eða fengið að vera þátttakandi í. Við vorum ekki fyrr lögð af stað til baka yfir gilin þegar þyrlunni er snúið algerlega á hvolf og hver dýfan á fætur annarri tekin með okkur emjandi af hræðslu og gleði. Viðar náði einhverjum myndböndum sem hann skellti á youtube en þar sjást ein eða tvær veltur.
Takið t.d. eftir sjónarhorninu á 0:08 sec. í þessu myndbandi.
Tvö önnur myndbönd frá Vidda á youtube









