Lætin í kringum Óla forseta
Umræðan um áhrif ummæla Ólafs Ragnars á ferðaþjónustuna virðist í megindráttum snúast á tvo vegu. Að hann sé að sinna almannavarnahlutverki erlendra ríkja – eða að hann sé að stórskaða ferðaþjónustuna hér innanlands.
Baldur tekur þetta vel saman og fær fína umræðu í framhaldi af því.
Mig langaði rétt að birta mynd af athyglinni sem Ísland er að fá og gefur kannski einhverja mynd af því hversu margir eru fyrst núna að spá eitthvað yfir höfuð í Íslandi. Fólk sem vissi varla af okkur. Og því sennilega síst af öllu á leið í ferðalag hingað. Hversu margir þeirra sáu síðan þessi umræddu ummæli Óla veit ég ekki né hversu margir þeirra sem hafa heyrt af Íslandi síðustu viku koma til með að heimsækja okkur.

Trend orðsins "Iceland" á netinu samkvæmt Google

Trend "visit iceland" á Google
Hvernig sem það fer þá er heildarfjöldi ferðamanna sem koma til Íslands á næstu árum langt í frá að fara að minnka.

