Facebook og öryggi þitt
Í vikunni opnaði Facebook kerfið sitt betur og gerðu efni vefsins enn aðgengilegra þeim sem hafa áhuga á að komast í gögn notenda þar. Eftir að Finnur frændi tók saman alla umfjöllun um eldgos og birti í síðu hjá sér greip ég kóðann og fletti upp tveimur leitarstrengjum sem í sjálfu sér eru ekki merkilegir.
Leitarorðin “ferðalag” og “ekki heima” geta hinsvegar birt lista yfir tilvalin fórnarlömb innbrota og aðeins dæmi um hversu auðvelt er að misnota upplýsingar sem fólk hefur ekki hugmynd um að það sé að gefa upp hverjum sem vill sjá. Og taktu eftir; þetta er aðgengilegt öllum. Ekki bara vinum þínum.
Ef þú ert notandi á Facebook, renndu endilega í gegnum privacy stillingarnar og athugaðu hvort þú sért nokkuð að birta of mörgum of miklar upplýsingar um þig.

Account - Privacy settings - Profile Information







