Eru farsímar skaðlegir?

Tækni 27 April 2010 | 0 Comments

Ef öllum rannsóknum á skaðlegum áhrifum farsíma er skipt í tvennt, annarsvegar þær sem eru styrktar af símafyrirtækjum eða fyrirtækjum í tengslum við þau og hinsvegar sjálfstæðar rannsóknir þeim ótengdum, kemur víst svolítið forvitnilegt í ljós.

  • 70% sjálfstæðu rannsóknanna benda til að notkun farsíma geti verið skaðleg.
  • 25% rannsókna styrktum af símafyrirtækja benda til að notkunin sé skaðleg.

Í nýjasta podcast þætti This American Life fjallar þriðji hluti þáttarins (hefst á 45:55) um einmitt þetta. Þeir tala m.a. um að farsímanotkun í dag sé stærsta líffræðitilraun sem gerð hafi verið. Að ekki sé búið að sanna þetta á einn veginn eða annan og að á meðan notum við símana óspart.

Þeir tala reyndar um að mörg Evrópulönd taki mun strangar á þessum málum en Bandaríkjamenn. Litlar sem engar rannsóknir séu framkvæmdar í Bandaríkjunum og regluverk um aldurstakmörk á notkun farsíma sé strangari eða til staðar í mörgum löndum Evrópu.

Það eitt að Bandaríkjamenn séu að draga lappirnar í þessu gæti kannski verið einhver vísbending.

Ekki misskilja samt. Strax eftir að ég hlustaði á þáttinn tók ég upp símann, lagði þéttingsfast að eyranu og talaði lengi vel án þess að spá nokkuð í þessu. Ég er ekkert á nálum yfir þessu.

En hver veit, þetta verður kannski stærsta “I told you so” mannkynssögunnar.

Tagged in ,

Leave a Reply