Líkaminn.is
Síðustu vikur er hef ég verið að skrifa svolítið af bloggfærslum á likaminn.is en það er vefur sem ég er að smíða með hjálp mikilla snillinga sem ýmist eru á kafi í næringa- og íþróttafræðum.
Færslurnar hafa verið um allt frá ráði við hlaupasting til ástæðna fyrir af hverju við ættum að borða hægar.
Bloggið sjálft er í raun hálfgert hliðar-verkefni vefsins þar sem vefurinn sjálfur mun verða undir tól sem ég er að smíða – og byrjaði á til að halda utan um eigin íþróttaiðkun og árangur á breyttu mataræði. Fyrstu eiginleikar kerfisins hafa verið prufaðir af litlum hópi og er ég þessar vikurnar að ganga frá þeim svo ég geti opnað þá fyrir gesti bloggsins.
Þannig að ef þú hefur áhuga á einhverju sem við kemur líkamanum því sem hefur áhrif á ástand hans þá skaltu endilega skrá þig á síðuna og fá aðgang.


