Bókað minni

Bækur,Lífið 7 February 2010 | 0 Comments

Fyrir einu til tveimur árum fór ég að venja mig á að skrifa hjá mér hluti. Ekki bara það sem ég þurfti að muna að væri framundan, heldur að reyna að koma því sem er að hugsa um niður á blað. Þetta hafa verið allt frá hugmyndum að vefsíðum til matarinnkaupalista og hef ég ekkert nema gott um þetta að segja. Það er bæði gaman að eiga þetta síðar meir, geta grafið upp gamlar hugmyndir sem auðveldara er orðið að framkvæma eða maður finnur einhvern nýjan vinkil á þeim. Það getur síðan líka haft fín áhrif á svefninn, sofna fyrr þegar maður hefur komið hlutunum frá sér.

Ég hef átt margar stílabækur í gegnum árin eftir tilraunir mínar til skólasóknar – og hef verið að krota í þær á milli enskustíla og íslenskra ritgerða. Ég fór síðan í fyrsta skiptið í Pennann í gær og fann mér tvær flottar bækur, önnur til að skrifa hjá sér punkta og plön og svo aðra sem þægilegt er að teikna í – uppköst að heimasíðum, notendaviðmót o.fl.

Það er síðan ekki að spyrja að verðlaginu hér á Íslandi þessa dagana, bækur sem ég var sáttur við kostuðu helling. Fyrstu punktarnir í bækurnar urðu því að spara og eyða ekki pening í vitleysu (einsog einhverjar stílabækur)!

Leave a Reply