Að fá slæmar hugmyndir

Lífið,Síðan,Vefsmíði 15 February 2010 | 0 Comments

Seth Godin talar, í nýrri snilldar bók sinni Linchpin, meðal annars um það að maður þurfi að þora. Að þora að fá slæmar hugmyndir. Það er ekki bara spurning um að maður finni strax réttu hugmyndina til að framkvæma. Maður verður að sætta sig við að góð hugmynd er oft bara ein af hverjum þremur. Ein af hverjum tíu.

Síðasta árið hef ég hrint hinu og þessu í framkvæmd – og eitthvað á ég enn eftir að framkvæma. Hvort það allt séu góðar hugmyndir á síðan bara eftir að koma í ljós.

Ég hef ákveðið að taka þennan pólinn í hæðina líka gagnvart blogginu – og smella því á publish takkann frekar en að láta færslur hanga í drafts þar til ég eyði þeim.

Tagged in ,

Leave a Reply