Villupúka-þjónusta fyrir Snow Leopard

Tækni 20 November 2009 | 0 Comments

Stafsetning og réttritun var, og er kannski enn, ekki mín sterkasta hlið. Villupúkinn er því afskaplega þægilegur til að skella texta inní til að leiðrétta verstu villurnar.

OS X stýrikerfið á Mac vélunum er með magnaðan eiginleika sem heitir Services, eða þjónustur. Ég tók mig til og smíðaði litla þjónustu sem tekur afritaðan texta, sendir á villupúkann og skilar í litlum glugga.

Screen shot 2009-11-20 at 3.48.16 PM

Texti afritaður (cmd+c)

Sent á villupúkann

Sent á villupúkann (hægt að setja flýtilykil á skipunina)

Svar frá Villupúkanum

Svar frá Villupúkanum

Þökk sé Automator hugbúnaðinum er lítið mál að setja svona saman. Íslenskan og hvernig vefur púkans er settur upp, flækir hinsvegar málið örlítið, þar sem vinna þarf textann yfir á rétt stafasett áður en hann er sendur á villupúkann.

Screen shot 2009-11-20 at 4.04.35 PM

Til að opna síður með þessum þjónustum í svona Website popup gluggum, þarf fyrst þarf að sækja og setja upp Website Popup þjónustuhlutann.

Þjónustuna má síðan sækja hér. Opnið innihald ZIP skráarinnar og veljið Save As og nefnið þannig þjónustuna. Í flestum hugbúnaði (Safari o.fl.) má svo fara í Service Preferences… og setja setja flýtilykil á skipunina.

Athugið að ég hef ekki hugmynd um hver skoðun höfunda villupúkans er á tólum sem þessum. Vefpúkinn er aðgengilegur öllum á netinu og því reikna ég með að þetta sé óhætt svo framarlega sem ljóst er hver er að lesa yfir textann. Ég hef látið

iconv hluti þjónustunnar virðist eitthvað brothættur. Er aðeins að virka hjá sumum sem hafa prófað. Ég fikta betur í þessu fljótlega og uppfæri vonandi með útgáfu sem virkar hjá öllum. Öllum er velkomið að henda á mig lagfæringum og viðbótum.

Leave a Reply