This is it!

Lífið 2 November 2009 | 0 Comments

thisisitx-topper-medium
Á föstudaginn átti ég enn eitt afmælið. Þar sem ég var nýkominn úr góðri ferð til Danmerkur var ekkert haldið uppá það sérstaklega, gleymdi mér meira að segja í vinnunni töluvert fram á kvöld og varð því dagurinn lítið frábrugðinn öðrum. Um helgina var síðan slappað svolítið af enda ennþá að komast í gang eftir allan danska bjórinn. Á laugardaginn skellti ég mér með Vidda á This Is It með Michael Jackson. Stórgóð mynd um þennan magnaða listamann. Kappinn dansaði þarna eins og unglingur þrátt fyrir að vera 50 ára og söng mun betur en ég hafði einhvernvegin gert ráð fyrir. Mæli með þessari ræmu.

Leave a Reply