Kóngsins Köben

Lífið 2 November 2009 | 1 Comment

Screen shot 2009-11-02 at 12.05.53 PMÞað verður ekki annað sagt en að þessi Danmerkur för mín hafi verið vel heppnuð. Ég lenti hjá Balla rétt fyrir miðnætti á fimmtudeginum en eftir ansi langa ferð var eftir orka í rétt svo einn eða tvo bjóra svo það var lítið gert af sér það kvöldið. Þau skötuhjú hafa það ansi gott í þessu collage’i þarna – umkringd öðrum íslendingum, skemmtilegum meira að segja, svo það er ekki laust við að örlítil öfund í garð skólafólks hafi blossað upp hjá mér.

Föstudaginn tókum við smá rölt um svæðið sem virtist allt hið fínasta, stutt í verslanir og sjoppur og, eins og dönum er trúandi til, bjór til allstaðar. Um kvöldið kíktu nokkrir íslenskir tappar á okkur og voru tekin drykkjuspil og góð umræða um íslensku útrásina, vandamál og vitleysuna sem peningar valda mannfólkinu og önnur hitamál sem best er að ræða undir áhrifum áfengis. Um kvöldið kíktum við Balli síðan á “Gaden”  sem er frekar skemmtilega skipulagður miðbær þarna á Álaborg. Ein gata með öllum pöbbunum sitthvoru megin og rífandi stemning.

Laugardagur fór í þynnku. Hjá Dananum. Ég slapp helvíti vel.

Sunnudag var slappað af, hlustað á Muse og gert sig kláran fyrir langan mánudag.

IMAG0030

Beðið eftir fluginu

Mánudagsmorgun fórum við eldsnemma útá flugvöll og flugum til Kaupmannahafnar. Klukkutíma síðar hafði Viðar bæst í hópinn. Lestarferð inn í miðbæinn, með stoppi þar sem við tékkuðum okkur inn á gistihús, tók við og fyrsti bjór dagsins rann ljúft niður. Við skoðuðum miðbæinn aðeins, strikið labbað en leit að bar utan innsta kjarna bæjarins gekk eitthvað ótrúlega illa. Annað hvort vorum við bara að ganga kolvitlausar götur eða það er minna um barina en við gerðum ráð fyrir.

Á lestarstöðinni við flugvöllinn

Á lestarstöðinni við flugvöllinn

Strætóferð yfir í austurhluta borgarinnar þar sem hið sérstaka fríríki Christiania er, var sennilega athyglisverðasti túristastaðurinn sem við skoðuðum. Fréttir um að öllu hafi verið lokað þar síðustu árin gerði upplifunina að labba þarna í gegn enn sérstakari, því fljótlega eftir að maður hafði gengið þarna inn var einhver sérstakur angann í loftinu ásamt því að fljótlega rakst maður á tugi sölubása þar sem allt var uppá borðum. Eftir því sem við gengum innar áttaði maður sig á hversu dapurt ástand var þarna. Það var mígandi rigning en samt húkti fólk þarna úti með sínar pípur, frekar dofið til augnanna. Allt niður í unga krakka, ófermda jafnvel, minna í heiminum en hollt sjálfsagt þykir.

Lókal pöbb

Lókal pöbb

Eftir þessa heimsókn kíktum við úr rigningunni inn á bar þar sem við settumst niður og fengum okkur töluvert af bjórum. Við yfirtókum jukebox staðarins og lífguðum uppá annars frekar daufa stemningu, með Elvis Presley, Bítlunum og annarri klassa tónlist sem þar var í boði. Það lifnaði síðan heldur betur yfir staðnum þegar við, útlendingarnir, skelltum Kim Larsen á fóninn. Aðrir bar gestir voru augljóslega stoltir af þessum landa sínum og létu ánægju sína með lagaval okkar augljóslega í ljós.

Þá var ferðinni heitið á það sem þetta snérist allt um. Tónleikar með Muse á Parken. Það er lítið annað hægt að segja um þá en að þeir hafi verið tær snilld. Stemningin þokkaleg, hljómsveitin frábær og show-ið glæsilegt. Danir virðast þó eitthvað lítið fyrir að fagna eða að klappa upp. Það sló algerri þögn á gesti þegar uppklapp hefði átt að eiga sér stað, hljómsveitin kom svo fram aftur og tók fín lög og þegar þeir höfðu svo lokið sér af, steinþögnuðu allir, snéru sér við og löbbuðu út. Við röltum síðan eitthvað þarna á bakvið höllina í burtu þar þar sem rútan með hljómsveitarmeðlimum brunaði svo í burtu, örfáum mínútum eftir að þeir höfðu lokið sér af. Augljóslega á mikilli hraðferð enda nóg af tónleikum eftir í túrnum hjá þeim.

Eftir tónleikana létum við leigubílstjóra finna næsta bar sem var opinn. Á barnum voru nokkrir íslendingar og aðrir tónleikagestir svo tónlistin á staðnum var að sjálfsögðu Muse. Barnum lokaði síðan um kl. 1 svo við röltum á stað heim. Komum við á strikinu þar sem eitthvað af íslendingum var á þvæling og síðustu bjórarnir drukknir fyrir kl. 2 – og fljótlega uppúr því vorum við sofnaðir eftir flottan dag í Kóngsins Köben.

Lagt í hann heim á leið

Lagt í hann heim á leið

Morguninn eftir var vaknað mjög snemma til að tryggja það að við kæmum okkur nú örugglega heim. Flugið heim var síðan örugglega hið ljúfasta en það var sofið megnið af því.

Í ferðinni lærði ég þó eftirfarandi:

  • Muse eru meiriháttar á tónleikum
  • Danir eru stórfurðulegir
  • Íslenska krónan er rusl þessa stundina

Annars vil ég þakka Baldri og Guggu kærlega fyrir að hýsa mig þarna úti og Vidda og Baldri fyrir góða skemmtun í Kaupmannahöfn. Þetta verður endurtekið.

Tagged in , ,

One Response on “Kóngsins Köben”

Trackbacks/Pingbacks

  1. [...] tók símann með til Danmerkur um daginn og hjálpar Google Maps manni vel við að átta sig á borgum og umhverfinu sem maður [...]

Leave a Reply