HTC Hero og Android

HTC Hero
Ég átti leið framhjá Hátækni eina helgina í október og slysaðist til að kaupa mér HTC Hero símann. Ég fann til í litla Apple hjartanu, enda hefur iPhone verið á óskalistanum í töluverðan tíma. HTC Hero síminn er hinsvegar að keyra hið merkilega Android stýrikerfi sem Google menn smíða. Stýrikerfið, sem í grunninn er Linux, er allt töluvert opnara en það sem iPhone keyrir og þannig er hægt að leika sér að vild að þessum símum. Strax fyrsta kvöldið var ég búinn að smíða forrit sem tengdist við GPS tækið í símanum. Forritið gerði reyndar ekkert merkilegra en það, tengist bara við GPS vélbúnaðinn en birti ekki einu sinni staðsetninguna.
Forrit til að tengja mann við Facebook, Twitter og alla helstu samfélagsvefina eru síðan til staðar svo maður á ekki eftir að missa af neinu á netinu.

3G Watchdog
Þar sem síminn er allur tengdur við Google, þá er hann beintengdur og “syncar” sig við gmail, google calendar, google contacts og gTalk spjallið. Vandamálið við að farsímarnir séu orðnir þetta nettengdir er hinsvegar að símafyrirtækin hér heima okra virkilega á öllu sem heitir netnotkun farsíma.
Ég valdi mér 1660 kr. á mánuði pakka hjá Vodafone og fæ þá 500MB gagnamagn sem virðast duga mér út hvern mánuð. Til að fylgjast með þessari notkun og til að tryggja að ég fari ekki langt umfram hana, sótti ég forritið 3G Watchdog sem mælir notkunina.
Eftir þriggja vikna notkun og töluvert flakk á netinu, niðurhal á pósti, stanslausum twitter uppfærslum og einhverri facebook notkun hef ég reyndar áttað mig á að þessi 500MB pakki er meira en nóg fyrir mig og því kannski ekkert svo svakalegt okur hjá Vodafone að rukka mig 1660 kr. fyrir að færa mér internetið í vasann.

Ég tók símann með til Danmerkur um daginn og hjálpar Google Maps manni vel við að átta sig á borgum og umhverfinu sem maður er að ferðast í. Eftir nokkur ár, þegar flestir verða komnir með einhverskonar GPS í símana sína, á þetta eftir að auðvelda fólki ferðalög um borgir og/eða óþekkt svæði. Ég sé alveg fyrir mér tæknilega vanheilt fólk einsog mömmu vera mikið afslappaðri í verslunarleiðangri á strikinu þegar hún sér á meðan í hvaða átt barinn, sem pabbi situr á, er.


WTF…tæknilega vanheil hvað ætlar þú ekkert að koma heim um jólin eða hvað ég bara spyr? Nei bara grín ég semsagt fæ svona flottan síma í jólagjöf spennó.