Browsing archives for November, 2009

Jólin komu snemma í ár

Óflokkað 24 November 2009 | 1 Comment

Eins og ég skrifaði á síðuna hjá Elvari þá hef ég fengið jólagjöfina mína í ár. Elvar tók sig til og skrifaði bloggfærslu! Síðan er Bylgja búin að vera fáránlega dugleg í einhverri matarhreinsun og skrifar um hvern dag á nýrri síðu.

Mamma skoraði 10 nördastig

Síðan,Tækni 23 November 2009 | 1 Comment

Mamma skoraði 10 nördastig fyrir skoðunina sem hún skrifaði á HTC Hero færslunni minni. WTF þýðir semsagt “what the fuck”, fyrir þá sem eru ekki jafn cool og mamma.

Villupúka-þjónusta fyrir Snow Leopard

Tækni 20 November 2009 | 0 Comments

Stafsetning og réttritun var, og er kannski enn, ekki mín sterkasta hlið. Villupúkinn er því afskaplega þægilegur til að skella texta inní til að leiðrétta verstu villurnar. OS X stýrikerfið á Mac vélunum er með magnaðan eiginleika sem heitir Services, eða þjónustur. Ég tók mig til og smíðaði litla þjónustu sem tekur afritaðan texta, sendir [...]

Gögn frá þjóðfundinum

Ísland,Pólitík,Vefsmíði 20 November 2009 | 0 Comments

Eftir að fyrstu gögn þjóðfundarins fóru að koma út á netið um síðustu helgi skellti ég upp lítilli síðu sem birti bæði gildi og framtíðarsýn fundargesta. Tengill á þessa litlu síðu mína endaði inná eyjan.is svo þúsund manns skoðuðu herlegheitin. Finnur Gommit frændi var yfir tæknimálum fundarins og smíðaði m.a. kerfið sem vistar öll gögnin [...]

HTC Hero og Android

Tækni 9 November 2009 | 2 Comments

Ég átti leið framhjá Hátækni eina helgina í október og slysaðist til að kaupa mér HTC Hero símann. Ég fann til í litla Apple hjartanu, enda hefur iPhone verið á óskalistanum í töluverðan tíma. HTC Hero síminn er hinsvegar að keyra hið merkilega Android stýrikerfi sem Google menn smíða. Stýrikerfið, sem í grunninn er Linux, [...]

Tagged in , ,

This is it!

Lífið 2 November 2009 | 0 Comments

Á föstudaginn átti ég enn eitt afmælið. Þar sem ég var nýkominn úr góðri ferð til Danmerkur var ekkert haldið uppá það sérstaklega, gleymdi mér meira að segja í vinnunni töluvert fram á kvöld og varð því dagurinn lítið frábrugðinn öðrum. Um helgina var síðan slappað svolítið af enda ennþá að komast í gang eftir [...]

Kóngsins Köben

Lífið 2 November 2009 | 1 Comment

Það verður ekki annað sagt en að þessi Danmerkur för mín hafi verið vel heppnuð. Ég lenti hjá Balla rétt fyrir miðnætti á fimmtudeginum en eftir ansi langa ferð var eftir orka í rétt svo einn eða tvo bjóra svo það var lítið gert af sér það kvöldið. Þau skötuhjú hafa það ansi gott í [...]

Tagged in , ,