Að rabba við Baunverja
Uppúr klukkan 4 í morgun hringdi ég í Jóa Mola og reif hann á lappir. Ég hafði platað hann til að keyra mig út á keflavíkurvöll eftir takmarkaðan nætursvefn. Uppúr 7 var ég steinsofandi í tugþúsund feta hæð yfir atlandshafinu á 700km hraða í átt til Kaupmannahafnar. Ég var varla stiginn frá borði frá flugvélinni þegar vinnan hringdi og eitthvað vesen var komið upp sem ég leysti með þeim tímabundið í gegnum símann. Fljótlega var síðan komið sér í netsamband á forláta flugstöðvabekk og vandamál vinnunnar leyst. Eftir það var komið sér vel fyrir á bar, hinn margrómaði Carls Special smakkaður og bók eftir Einar Már rifin upp.
Í kvöld flýg ég áfram til Álaborgar í heimsókn til Balla og Guggu og heimsókn minni til Danmerkur haldið þar áfram.







Góða skemmtun