Skagfirskir áhugaljósmyndarar

Myndir 24 September 2009 | 5 Comments

flickr-logoÞað er töluvert um ljósmyndara bæði atvinnu og ekki síður áhuga í og úr Skagafirði. Í gegnum Facebook hef ég meðal annars rekist á klúbbinn Ljóska sem hefur 45 meðlimi svo áhuginn er klárlega til staðar (Síðuna þeirra bráðvantar reyndar tengla á myndir eftir meðlimina). Fjörðurinn skemmir líka ekkert fyrir þeim sem vilja prófa sig áfram, nóg er af fallegum stöðum til að mynda. Flestir ljósmyndarar hafa flickr síður svo mér datt í hug að safna saman einherjum lista.

Til að henda þessum lista saman ætla ég að gerast svo djarfur að stela einni mynd frá hverjum ljósmyndara og birta hér í póstinum. Ég vona að mér verði fyrirgefið það. Smellið á myndirnar til að skoða síðurnar þeirra.

Ef þið vitið um fleiri Skagfirðinga eða aðra sem taka mikið af myndum í firðinum á flickr – bætið þá endilega við slóðum í skoðanirnar.

Gunnar Freyr

Gunnar Freyr

Hrannar Örn

Hrannar Örn

Silja Ösp

Silja Ösp

Davíð Már

Davíð Már

Brimdís

Brimdís

Björn Ingi

Björn Ingi

Linda Fanney

Linda Fanney

Tagged in ,

5 Responses on “Skagfirskir áhugaljósmyndarar”

  1. Baldurjon says:

    Glæsilegar myndir þarna á ferð… þá sérstaklega ná fyrstu tvær til mín!

  2. addi says:

    Bara skoða betur ægir ;)
    Undir hlekkir á ljoska.is eru linkar á flickr síður hjá flestum meðlimum sem hafa flickr síðu.

  3. Ægir says:

    Vúbbs, my bad ;)

    Mætti skella tenglunum undir “Meðlimir” síðuna. :)

  4. Brimdís says:

    hahaha var að sjá þetta núna :)

Leave a Reply