Skagafjörður.net
Ég er búinn að eiga lénið skagafjordur.net í nokkur ár, frá því við Villi Árna og síðar Jói Sigmars vorum með metnaðarfullan fréttavef þar. Stuttu eftir að við Villi vorum fluttir suður gáfumst við upp á að halda vefnum úti. Lénið hefur þó alltaf verið til og í gærkvöldi ákvað ég að prófa að henda einhverju í gang þar.
Hugmyndin var semsagt að safna saman Skagfirskum bloggurum og vísa í færslurnar þeirra. Sömuleiðis draga úr flickr og öðrum síðum allt það sem mögulega gæti tengst firðinum fagra. Ef þú átt slóð á eitthvað Skagfirskt efni á netinu smelltu því þá endilega inn á skagafjordur.net


