Kauptu.is
Í sumarfríinu í byrjun ágúst skellti ég saman grunni vefsins kauptu.is sem ég setti svo í loftið í gær. Vefurinn safnar saman smáauglýsingum af helstu vefum landsins og gefur gestum möguleika á að leita í auglýsingasafninu. Eiginleikum kauptu.is á eftir að fjölga með tímanum en nú, þegar leitin er farin að skila niðurstöðum, er hann farinn að sinna grunntilgangi sínum.
Balli bjó til þetta fína merki fyrir vefinn, ásamt nýju útliti sem verður sett á hann bráðlega.


