Kauptu.is ferlið

Vefsmíði 15 September 2009 | 5 Comments

Mig langar rétt aðeins að skrifa um ferlið á bakvið smíði kauptu.is vefsins.

Forsaga hugmyndarinnar er að fyrir einum til tveimur mánuðum síðan ákvað ég að selja PS3 tölvuna mína þar sem ég var löngu hættur að nota hana. Aukið lausafé var síðan ekkert slæmt heldur. Til að finna verð á vélina kíkti ég psx.is sem er leikjatölvuvefur , barnaland.is og á smáauglýsingahluta mbl.is og visir.is fréttavefanna. Það að þurfa að flakka á milli þessara vefa bara til að sjá hvað menn voru að selja þessar vélar á fannst mér of mikið – svo hugmyndin fæddist.

Uppkast og fítusar

Uppkast að útliti og eiginleikum

Það fyrsta sem ég skoðaði var hversu sjálfvirkan ég gæti haft vefinn. Hvort ég gæti sett upp kerfi sem skannar þær síður sem ég vísa því á, látið það sækja nýjustu auglýsingarnar og sett í grunn sem hægt væri síðan að gefa notendum möguleika á að leita í.

Útgáfa 1

Útgáfa 1

Þetta var allt frekar einfalt og tók ekki nema örfáa tíma af forritun og úr varð fyrsta útgáfan af vefnum. Ég fékk nokkra á MSN listanum hjá mér til að prófa hann og grunn hugmyndin virtist vera að virka; hægt að leita að auglýsingum af nokkrum vefum í einu.

Því var ekkert annað að gera en að kaupa lén undir þetta og skýra vefinn. Upphaflega hugmyndin var nú að láta hann heita kauftu.is (rangt skrifað viljandi) til að vera svolítið rebel og fá athygli útá nafnið. Ég hætti við það á síðustu stundu, hver veit nema ég skipti um nafn seinna.

Útgáfa 1.1

Útgáfa 1.1

Baldur félagi minn, sem stundar nám í grafískri hönnun við UCN háskólann í Danmörku, tók sig til og kastaði því næst upp merki á vefinn ásamt því að leggja mér lið við að koma þokkalegu útliti ofaná hann.

Markaðssetningin fyrir vefinn var síðan afskaplega einföld. Facebook. :-)

Nýir eiginleikar eru síðan væntanlegir á næstunni. Betri tenging við notendur vefsins, þeim gefinn betri kostur á að fylgjast með leitarorðum og sitthvað fleira spennandi.

Tagged in ,

5 Responses on “Kauptu.is ferlið”

  1. Hjörvar says:

    Brilliant síða! löngu tímabær :)

  2. Bylgja Finns says:

    þú ert snillingur brlóðir sæll

  3. Kauptu.is er flott konsept. Ég væri til að sjá smá breytingar á útlitinu samt :)

  4. Ægir says:

    Takk fyrir það Andrés, en já hönnuðurinn er búinn að taka útlitið í gegn.. verður allt flutt yfir í appelsínugult og voða budget allt á næstunni ;)

  5. Haukur V. says:

    brilliant stöff…

    þetta á eftir að skora …

Leave a Reply