Til hamingju, mamma.
Hún elskulega móðir mín á afmæli í dag.

Vígaleg í fjallgöngu
Óska henni hjartanlega til hamingju með daginn. Ég heyrði í henni í morgun, staddri á Flókalundi á vestfjörðum. Heyrði líka í Sonju sem fannst miklu merkilegra að hafa verið í nágrenni Bjarkalundar (úr Dagvaktinni) fyrr um daginn. Megnið af hersingunni er á leið á ættarmót fyrir vestan þar sem afkomendur Albertu Albertsdóttur og Marsellíusar Bernharðssonar ætla að hittast. Planið hjá mér er að fljúga þangað á föstudaginn.
Ég hef þrisvar farið á Vestfirðina, en fyrst núna vopnaður myndavél. Vona að það gefist tími til að taka inn eitthvað af náttúrunni og landslaginu. Ekki veitir af eftir heitt sumar við skrifborðið á malbikinu.


Gamla bara á toppnum mar, en takk fyrir kveðjuna Ægir minn.