Klettaklifur

Lífið 2 July 2009 | 0 Comments

tricky ™

tricky ™

Síðustu tvö kvöld er ég búinn að príla alveg heil ósköp. Fyrir nokkrum vikum rambaði ég inn á heimasíðuna hjá Klifurhúsinu og sá að þeir eru með námskeið í klettaklifri. Við Viddi slógum til og fórum á þriðjudagskvöldið í Klifurhúsið þar sem Hjalti tók á móti okkur og kenndi okkur helstu handtökin og á búnaðinn sem er notaður.

2682928904_b0d0c31bea

Þessi þarf enga helvítis öryggislínu

Í gærkvöldi, miðvikudag, fórum við síðan upp í Valshamra, norðanmegin í Esjunni, að klifra í einhverja 4 tíma. Klifrið sjálft tók líkamlega ekkert svakalega á heldur mikið frekar á hausinn. Maður var ekki alveg að meðtaka það hversu auðvelt er að standa í klifurskóm utan á kletti sem manni sýnist vera algjörlega lóðréttur svo maður ríghélt sér og var ekkert stökkvandi í næstu skref. Þetta var þó allt að koma og eins og með allt annað skapar æfingin sjálfsagt meistarann.

Næst á dagskrá er svo að fara að mæta í klifurhúsið og æfa handtökin betur og svo er bara að verða sér úti um búnað og æfa sportklifrið eins og vitleysingur um allt land enda töluvert um klifursvæði.

* * *

Uppfært 3. júlí

Við fengum sendar myndir frá Jóni, sem var með okkur á námskeiðinu, og ég ætla að gerast svo djarfur að stelast til að birta tvær hérna.

Er hnúturinn réttur?

Er hnúturinn réttur?

Upp komst maður

Upp komst maður

Tagged in ,

Leave a Reply