Lífið, Myndir
30 July 2009 | 1 Comment
Á föstudaginn flaug ég vestur til Ísafjarðar til að mæta á ættarmót. Ég þóttist ætla að vera duglegur að taka eitthvað af myndum. Þær urðu 5 á vélina mína. Tók síðan eitthvað á vélina Bylgju systur. Ekki merkilegur árangur. Þarf virkilega að fara að gera eitthvað í þessu myndatökuleysi hjá mér.
Næsta helgi er svo víst [...]
Tagged in fjöskyldan, Myndir
Bækur, Ísland
27 July 2009 | 0 Comments
Í síðustu viku las ég bókina Óvinafagnaður, eftir Einar Kárason. Bókina kláraði ég sitjandi afturí húsbílnum pabba, akandi milli Ísafjarðar og Núps í Dýrafirði. Í bókinni er fjallað um ferðir Þórðar Kakala um Ísland í hefndarhug eftir að Kolbeinn ungi og Gissur Þorvaldsson hafa drepið föður hans og bræður í Örlygsstaðarbardaga. Þegar líður á söguna [...]
Lífið, Ísland
22 July 2009 | 1 Comment
Hún elskulega móðir mín á afmæli í dag.
Óska henni hjartanlega til hamingju með daginn. Ég heyrði í henni í morgun, staddri á Flókalundi á vestfjörðum. Heyrði líka í Sonju sem fannst miklu merkilegra að hafa verið í nágrenni Bjarkalundar (úr Dagvaktinni) fyrr um daginn. Megnið af hersingunni er á leið á ættarmót fyrir vestan þar [...]
Tagged in fjölskyldan, Ísland
Óflokkað
22 July 2009 | 0 Comments
Mikið er veðrið búið að vera stórkostlegt hérna á suðurhlutanum. Ef það hefði einhverntímann verið málið að taka sér mánuð í sumarfrí hefði það verið júlí þetta árið. Einhverra hluta vegna er mér samt búið að takast að vera með vott af hálsbólgu allan tímann.
Hver eru einkenni svínaflensunnar aftur?
Tagged in heilsa, veður
Lífið
2 July 2009 | 0 Comments
Síðustu tvö kvöld er ég búinn að príla alveg heil ósköp. Fyrir nokkrum vikum rambaði ég inn á heimasíðuna hjá Klifurhúsinu og sá að þeir eru með námskeið í klettaklifri. Við Viddi slógum til og fórum á þriðjudagskvöldið í Klifurhúsið þar sem Hjalti tók á móti okkur og kenndi okkur helstu handtökin og á búnaðinn [...]
Tagged in íþróttir, klettaklifur