Ísland – Holland

Lífið 7 June 2009 | 0 Comments

Ég skellti mér á Ísland – Holland í gær með Bjaddna, Vidda, Ásgeir og félaga Ásgeirs. Úrslitin voru svona þokkaleg miðað við að hafa verið að spila við annað best landslið í heimi. Hemmi Hreiðars sá algjörlega um skemmtanagildið í leiknum með baráttunni við Arjen Robben sem virtist ekki alveg kunna að meta baráttu Íslendingsins.

06062009009

Skrautlegir Hollendingar

Veðrið í borginni var búið að vera meiriháttar allan daginn þannig að stemningin bæði fyrir utan Ölver þar sem tólfan, stuðningsmannaklúbbur landsliðsins, kemur alltaf saman og í laugardalnum var skrambi góð.

06062009010

Fjörug tólfan

Tagged in , ,

Leave a Reply