Flensa eftir hafið

Lífið 25 June 2009 | 2 Comments

Ég er búinn að hafa það frekar ömurlegt hér heima í vikunni, sennilega eftir allan sjóinn fyrir norðan, með kvef, hálsbólgu og vott af hita. Skilst reyndar að fleiri hafi komið hóstandi heim að norðan þrátt fyrir að hafa ekkert farið í sjóinn – svo ég nota það sem einhverskonar huggun um að þetta hafi ekki bara verið aumingjaskapur í mér. Nýtti mér tækifærið í dag og lagði undir mig stofuna eftir að vinnan fór að kalla og draga mig úr afslöppuninni.

Þægileg uppsetning í stofunni

Þægileg uppsetning í stofunni

Ég reikna fastlega með því að hanga heima líka á morgun og takmarki útiveru um helgina og því kom sér afskaplega vel að þrjár bækur lentu frá amazon í gær.

Amazon sendingin

Amazon sendingin

Fyrsta bókin er eftir Tim Ferriss sem ég er búinn að lesa mikið eftir á bloggsíðunni hans. Þetta er tappi sem virðist geta tekið hvaða viðfangsefni sem er og masterað. Kiljurnar tvær eru síðan bækur sem Tim hefur mælt með, önnur um markaðsmál og hin um ferðalög.

Og rétt í þessu varð jarðskjálfti.. stuð.

Tagged in ,

2 Responses on “Flensa eftir hafið”

  1. Gommit says:

    4 hour work week er snilld

  2. Ægir says:

    Þokkalega.. þetta var alveg mögnuð lesning.
    Hún verður lesin aftur við fyrsta tækifæri.

Leave a Reply