Finnsson.net tekin í gegn

Síðan 26 March 2009 | 3 Comments

Hluti af hádeginu í dag fór í þessa blessuðu síðu mína. Ég nenni ekki lengur að vera með minn eigin kóða til að keyra hana, kóðinn var bæði orðinn gamall og bölvað vesen að gera skemmtilegar breytingar. Ég henti því upp Wordpress blogg kerfinu og skellti tilbúnu útliti frá Woo Themes ofaná. Hvort ég verði eitthvað duglegri að blogga eftir þessa breytingu er allt annað mál. Á hægri hlið forsíðunnar er hinsvegar komið lifestream sem birtir það sem ég er að skrifa á Facebook, Twitter, merkja í Google Reader og öðrum stöðum á netinu svo það er ætti alltaf eitthvað nýtt að vera hérna.

Ég er búinn að moka öllum blogg færslum yfir en skoðanirnar verða að bíða betri tíma.

3 Responses on “Finnsson.net tekin í gegn”

  1. Rétt að prófa Facebook tenginguna.

  2. Bylgja Finns says:

    Flott hjá þér bróðir sæll

Leave a Reply