Hörku sunnudagur
Ég veit ekki hvað það er með sunnudaga hjá mér en ég kann ákaflega vel við að eyða honum í vinnunni. Mikið frekar en laugardögum. Eyði kanski 25% af tímanum í að vinna eitthvað af viti en er annars bara að taka stöðuna á helstu síðunum, fréttum og því öllu og kíki svo yfir helstu verkefni komandi viku.
Í dag byrjaði ég reyndar á eintómri hollustu. Hafragraut, sem er kominn sterkur inn í fæðuhringinn og sundi, þar sem ég réðst í kílómeterinn án mikilla vandræða. Einhverskonar hreyfing er einhvernvegin orðin nauðsynlegur hluti af deginum hjá mér. Kann vel við það. Dagurinn er svo að enda á vel sterkum kjúkling í panang :þ

(Ég þarf að fara að þvælast meira með þessa myndavél)
Ég leit annars á mótmælin í gær, merktur appelsínugulu að sjálfsgöðu. Hér er smá upptaka úr símanum í glötuðum gæðum. Þvílík stemning sem var í bænum, götulistamenn, götumarkaður og túristar að vaska upp í bölum á lækjartorgi – svakalega skemmtilegur blær yfir bænum.
Jónsmessa 2008 from finnsson on Vimeo.
Ég fann reyndar þegar ég var að hlaða þessari klippu af símanum enn betra brot frá síðustu Jónsmessu þar sem Elvar mætir á svæðið.
Ég nenni ekki að fara útí pólitík vikunnar.
Annars er það bara vinnan þessa vikuna og síðan Þorrablót á Hofsósi næstu helgi!






