Þetta var ekkert ég
Ég hef fengið eitthvað veður af því að tappinn sem prílaði upp á alþingi og flaggaði þar Bónus fánanum hafi eitthvað líkst mér. Ég kíkti reyndar á mótmælin sem mér fannst nokkuð góð, töluvert betri en látið var af í fréttum sem sýndu bara myndir frá eggjakastinu sem fór algjörlega framhjá mér.
Bónus fáninn, innkaupakerran við stjórnarráðið og lokun ráðherrabústaðarins vegna aðgerðaleysis eru flott mótmæli hvort sem fólki finnst þetta allt útrásarvíkingum eða ríkusstjórninni að kenna. Fólk á bara að láta heyra í sér.






