Bara berjast!

Óflokkað 23 October 2008 | 0 Comments

Þeir spá 20% verðbólgu og lækkunar húsnæðisverðs. Það er fínt, ég er nýlega búinn að skuldsetja mig með íbúðarkaupum svo lánin fara sjálfsagt langt yfir verðgildi hennar.

Krónan verður fljótlega fljótandi á nýjan leik; það er fínt, bíllinn minn er í myntkörfuláni.

Og tölvufyrirtækin eru byrjuð að moka út starfsfólki; gott mál þegar ég er að stelast frá vinnunni til að reyna að þykjast vera námsmaður.

Annars er helst í fréttum; það er spáð stormi í nótt, ísbreiðan er að nálgast landið og bæði hætta á eldgosi á suðurlandi og snjóflóðum fyrir vestan.

Hver segir svo að það sé ekki gott að vera Íslendingur? ;)

Leave a Reply