Áhugaverð tilraun
Ég var eitthvað að pirra mig á hvað ég væri sokkinn í að fylgjast með nýjustu fréttunum af hversu slæmt við Íslendingar höfum eða eigum að hafa það.
Skellti þessvegna í morgun lítilli vísun í tölvuna þannig að ef ég sló inn mbl.is, visir.is og eyjan.is í vafrann að þá hentist ég á litla síðu með reiðum skilaboðum til sjálfs míns.
Framan af degi fór ég ekki nema einu sinni á síðuna eftir að mér hafði verið sendur tengill á frétt á mbl. Núna undir lok dagsins er staðan hinsvegar önnur. Ég fer ég trekk í trekk þarna inn bara af einhverjum vana. Svo ég er greinilega löngu dottinn úr vinnu gírnum og þyrstur í eitthvað ráp á netinu.
Slæ þessu því upp í kæruleysi og kem mér heim í skólabækurnar.






