Áfram Ísland!

Óflokkað 12 October 2008 | 0 Comments

Það er óhætt að segja að síðasta vika hafi verið hress fyrir okkur Íslendinga. Þrír stærstu bankarnir okkar voru teknir yfir af ríkinu og Bretar ákváðu að traðka aðeins á okkur. Eftir stöndum við bláfátæk og með fátt annað en þorskinn í hafinu og landið undir fótum okkar. Síldina og landvættirnar – eða íslensku krónuna sem virðist brandari hér fyrir utan landsteinana.

Ég átti ljómandi góða helgi með fjölsyldunni sem kom að norðan og fjölmennti á Villa Vill tónleika en sjálfur var ég heima og passaði Sonju, litlu systur, og átti afbragðs kvöld. Þetta var afbragðs helgi til að rífa sig aðeins frá internetinu sem fjallar um lítið annað en vesenið á okkur Íslendingum.

Annars er það bara að brosa; smælaðu framan í heiminn, eins og meistari Megas segir.

PS. Rakst á myndband frá 2006 með Baggalút áðan sem er við hæfi núna, þetta með að brosa. En takið eftir peningakallinum sem kemur fram þegar líður á myndbandið ;)

Leave a Reply