Ætli ég setjist?
Ég skrapp norður um þar síðustu helgi. Tók mér tveggja daga frí fyrir helgina sem reyndar enduðu svo með setu við tölvuna við eldhúsborðið á Hofsósi vegna óvæntrar vinnu sem kom upp. Ekkert að því reyndar að vinna í næði á Hofsósi; útsýnið út gullströndina út um eldhúsgluggann, baksvipirnir á Pardus og Stuðlabergi í hina áttina eru svo sem ágætt líka. Í tilefni af því að pabbi varð fimmtugur þriðjudaginn eftir þessa helgi, skellti fjölskyldan sér norður á Akureyri þar sem við kíktum saman í bíó. Fórum á myndina Sveitabrúðkaup sem kom mér nokkuð á óvart, hef ekki gert miklar væntingar til íslenskra mynda og þessi slapp alveg til. Svo var grillað og haft það gott á Hofsósi. Ég brunaði svo nokkuð snemma suður á sunnudeginum. Var klukkan 15:09 á Vesturlandsvegi, Fiskilæk – 301 Hvalfjarðarsveit. Á það skjalfest af hraðamyndavél sem finnst 104 km hraði vera 22 þúsund króna virði. Kærkominn pappír fyrir fátækan námsmann eins og mig.
Vinnan er óvenju lífleg þessa dagana. Það hefur bæst bæði töluvert við verkefnalistann auk þess sem meiri áhersla er komin á kerfisstjóra titilinn í viðbót við forritara starfið. Þetta smell passar allt við ákvörðunina hjá mér um að setjast á skólabekk, eða þannig. Ég held þetta sé samt allt að hafast, það er unnið bæði hratt og lært vel og lengi, sem er svo sem eðlilegt að þurfi enda erfitt að kenna gömlum hundi að setjast.
Annars er september stútfullur af afmælum. Sonja systir varð 9 ára þann 1., Daði frændi 26 þann 6., pabbi varð fimmtugur og Netheimur 10 ára þann 9., Hafrún frænka og Viddi leigjandi í dag 15., Elfa Rut vinkona 25 ára núna eftir miðnætti, Danni vinnufélagi þrítugur núna fimmtudaginn 18. og svo er ég örugglega að klúðra einhverjum, finnst alveg ágætt af einhverjum sem verður 25 ára í næsta mánuði að muna þetta marga! En allavega; til hamingju með mánuðinn öll!






