Hvað skal segja…

Óflokkað 5 August 2008 | 0 Comments

Ekki mikið búinn að taka upp pennann síðasta mánuðinn, kanski lítið tilefni verið til. Tók mér viku í sumarfrí og stóð við að gera sem allra minnst. Hélt mér á suðurlandinu og slappaði af. Veðrið var reyndar ekki upp á marga fiska, rigndi megnið af tímanum. Var reyndar agalega sniðugur síðan á hitamets deginum mikla í síðustu viku og byrjaði að vinna þann dag kl. 6 og var því laus eftir hádegi og naut blíðunnar.

Verslunarmannahelgin er ný afstaðin og var ekki farið neitt. Hugmyndir voru að skutlast til Eyja á laugardegi eða sunnudeginum en það var síðan látið eiga sig. Kíkti rétt aðeins til Þorlákshafnar þar sem litlu systurnar voru að keppa á landsmóti á laugardaginn en annars voru það bara nokkrir bjórar í heimahúsum.

Núna tekur vinnan við á fullu en þegar líður á mánuðinn verður skotist til Ísafjarðar eina helgi þar sem fyrstu tímarnir í HR fjarnáminu verða kenndir og námsefnið kynnt fyrir manni. Skóli aftur eftir 7 ára fjarveru, þetta verður áhugavert.

Leave a Reply