Eldgömul myndbönd
Pabbi tók sig til og sendi allar 8mm, eldgömlu spólurnar sínar í Bergvík þar sem þeir spóluðu þeim yfir í stafrænt form.
Er aðeins byrjaður að fikta í efninu. Erum að tala um hljóðlausar myndir frá því fyrir 1980. Skilst að sum myndbrotin séu sirka frá því þegar gamli var 15-16 ára. Nú á bara eftir að fara í það að rifja ártölin upp og reyna að koma þessu vel fyrir. Spurning að Hofsós eignist litla síðu sem varðveitir svona efni á netinu?

Sýnist pabbi vera þarna fyrir miðju í efri ræmunni.
Sú neðri er meistari Sigurmon á Willis á RARIK tímabilinu.






