150 ára afmæli
Núna nýliðna helgi skelltum við Jói okkur upp í nýja ML 500 Benzann Binna og rúlluðum norður með honum og Hafdísi í afmæli aldarinnar.
Haldið var upp á þetta í ný byggðri vélaskemmu á Hrauni þar sem allt fylltist af fólki sem skemmti sér konunglega fram eftir kvöldi. Haldnar voru stórkostlegar ræður, borðaður meiriháttar grillmatur og skemmt sér fram eftir nóttu.
Ég tók myndavélina mína með norður og tók alveg eina mynd á hana. Í miðju afmælinu tók ég svo hinsvegar yfir vélina Vals og Unu og smellti af einhverjum 300 myndum sem ég á aðeins eftir að fara betur í gegnum og sjá hvað sé internethæft af því.
Heilt yfir var helgin nokkuð góð fyrir utan bílslys sem Atli frændi þurfti að koma sér í. Sendum við honum öll baráttu kveðjur og geri ég ráð fyrir að sjá þig bráðlega kappi!









