Mynd af mynd
Selma frænka var að senda mér mynd af fyrstu prentuðu myndinni sem ég hef tekið. Systkinin á Hrauni gáfu Arnari bróður sínum hana í fermingagjöf. Myndin er prentuð á álplötu sem er svo hengd upp og helst nokkra millimetra frá veggnum svo það kemur held ég nokkuð flott út.


Ég á reyndar enn eftir að sjá myndina sjálfur. Frekar slappt hjá manni samt að hafa ekki séð frumraun sína á prenti ennþá.






