Jónsmessuhátíð á Hofsósi
Skellti mér norður um helgina á Jónsmessuhátíðina. Tók mér reyndar frí frá miðvikudegi til föstudags svo ég gat komið mér norður strax á mánudagskvöld. Vikan var fín, alltaf notalegt í Skagafirði. Á föstudagskvöldið fylltist svo lóðin heima af liði. Jói og Gunni mættu og höfðu dregið Halla með sér sem bílstjóra. Halli hafði svo dregið tvo félaga sína, Árna og Þorra, með og í lokin bættust Viddi, Ásta, Óli og Íris. Úr varð hin þokkalegasta Jónsmessuhelgi. Þetta fór allt nokkuð siðsamlega fram. Halli tók við af Jóa í að leggja sig þar sem honum hentaði. Kom sér fyrir á tjaldstæðinu. Mínus tjald.







