Gott tónlist!

Óflokkað 10 June 2008 | 0 Comments

Er búinn að vera að spila svolítið af nýrri tónlist uppá síðakstið. Datt niður á nýjustu Black Keys plötuna, Attack and Release, um daginn og varð alveg dolfallinn.

Hef ekki mikið verið fyrir Coldplay en Violet Hill lagið sem hefur verið í spilun kom mér í að hlusta aðeins á nýju plötuna sem margir eru að dásæma.

Fyrir mér ber samt nýja platan hjá Sigur Rós höfuð og herðar yfir aðra tónlist í playlistanum hjá mér. Grunar að það sé ekki stór prósenta ykkar sem eruð fyrir þetta eitt mesta love/hate band landsins. Finnst platan samt miklu meira “normal” svo endilega kíkið á hana því það er örugglega eitthvað lag þarna sem þið nennið að hlusta á ;)

Sigur Rós menn leyfa spilun á allri plötunni gegnum last.fm næstu tvær vikur, svo endilega rennið í gegnum gripinn.

Leave a Reply