Allt fínt!
Nenni nú ekki einusinni að ræða Ísbjörninn hérna. Það mál er dautt.
Skellti mér í Sjóstangveiði með vinnunni um síðustu helgi. Fiskirí, meiriháttar grillmatur og ískaldur bjór. Viddi vann, veiddi þann vænsta.
Á mánudaginn tók ég mér svo sumarfrí og létti undir með Binna fyrsta daginn hans í að keyra fyrir bróðir sinn. Ferðin var áhugaverð – þó ekki sé meira sagt.

Þessi átti beygju dagsins
Rakst annars á myndir frá Sjómannadeginum á Hofsósi inná Skagafjordur.com



