Skagafjörður um helgina
Við Moli skelltum okkur norður um helgina. Bylgja var að halda uppá tvítugsafmælið sitt með hörku veislu. Við létum okkur ekki vanta, gripum gítara með og skemmtum okkur konunglega. Kíktum líka aðeins út í sveit á Binna og Arnar þar sem þeir voru að hjóla og smelltu nokkrum myndum af þeim. Kem þeim á netið við tækifæri.


Annars var bara slappað af, borðað góðan mat og haft það gott. Ferðin suður kom manni svo heldur betur í sumarskap, þvílík blíða.
Í síðustu viku var svo töluvert um umsóknir. Sendi eina inn í HR, hugmyndir uppi um að fara að mennta sig eitthvað, og önnur umsókn í Boot Camp. Bjaddni, Balli og Gugga skráðu sig svo ég lét vaða líka. Núna verður það bara sviti og blóð eitthvað inn í sumarið. Það verður áhugavert.






