Blogga ekki af minna tilefni!

Óflokkað 30 May 2008 | 0 Comments

Það þarf bara hinn þokkalegasta jarðskjálfta til að maður bloggi.

Gærdagurinn var ansi áhugaverður fyrir flesta hérna á suðurlandinu. Ég var staddur hérna í vinnunni þegar allt byrjaði að hristast, kíkti fyrst útum gluggann til að athuga hvort eitthvað af trukkum væru á leið niður kringlumýrarbrautina en svo var maður nokkuð fljótur að átta sig þegar maður fór að finna sveifluna á blessuðu húsinu. Skrifstofan er hérna á fjórðu hæð í sóltúninu svo maður fékk smá fiðring í magann, annars bara ansi hressandi upplifun.

Ingvi Hrafn var svo YouTube maður gærdagsins.

Annars er það bara BootCamp á fullu, get alveg sagt ykkur það að þetta er ekki alveg hugsað fyrir kyrrsetumann eins og mig. Dugnaðurinn hjá manni datt aðeins niður á miðvikudaginn þegar við skelltum okkur nokkur á John Fogerty, sem var alveg helvíti góður.

Eurovision kvöldið fór ég í afmæli til Drafnar hans Gunna og tveggja Skagfirðinga, Svönu Jónu og Auðar. Get ekki sagt mikið frá því kvöldi þar sem það er eitthvað gloppótt í minningunni, komst að því að úthald í drykkju er akkúrat ekkert enda er maður að ganga ansi langt á líkamlega og andlega orku í þessum BootCamp tímum.

Leave a Reply