Ágætur ÖMURLEGUR dagur, þrátt fyrir allt
Fyrirsögnin breyttist aðeins þegar þessi fína bloggfærsla sem ég hafði skrifað eyðilagðist. Ég hélt ég vissi betur en þetta. Allavega;
Eigum við að ræða þetta BootCamp eitthvað? Það eru allavega strengir, hræðsla fyrir næsta tíma og spenna fyrir hvernig ástandi maður verður í eftir næstu vikur.
Twitter – var búinn að skrifa langloku um ágæti þessa tóls. Þetta þræl skemtilegt þegar maður er farinn að fylgja fólki sem skrifar um áhugaverða hluti. Scobleizer var til dæmis búinn að twitta um jarðskjálftana í Kína klukkutíma áður en nokkur fréttamiðill var farinn að fjalla um þá, einfaldlega af því að einhver sem hann var að fylgjast með á Twitter sendi inn skilaboð um jarðskjálftana á MEÐAN þeir voru að gerast
Viðar, Balli og Binni eru eitthvað farnir að prófa þetta þannig það er um að gera að skrá sig og fara að elta þá.
Henti í gærkvöldi saman bloggi fyrir Dagný Hofsósing og fleira lið sem er að að fara til Perú eftir helgi. Þau ætla einmitt að nota Twitter til að senda inn skilaboð með GPS punktum sem birtast á korti og segja til um hvar þau eru og hvað sé að gerast hjá þeim. Það verður gaman að fylgjast með því.







