Twitter og Gommit

Óflokkað 1 April 2008 | 0 Comments

Stofnaði mér loksins Twitter aðgang – en þetta tól er búið að vera að koma sér vel fyrir á netinu. Veit ekki hversu mikla nörda-gesti ég fæ en ef lið þarna úti er með aðgang þá er ég twitter.com/finnsson

Þetta er tilvalið fyrir fólk sem nennir ekki að blogga mikið og langar að pósta litlum skilaboðum á netið til að láta vita af sér og enn sniðugra til að fylgjast með öðrum. Endilega prófa fólk og leyfa mér að fylgjast með :þ

Þið sem þekkið svo Finn Pálma, Gommit.com, frænda – og vitið ekki af því – þá er hann þessa stundina staddur á bát flakki eftir Zambezi ánni í Afríku. Þeir kappar eru með síðu þar sem þeir pósta inn skilaboðum, einmitt með Twitter. Þangað senda þeir líka inn GPS staðsetningar svo það er hægt að sjá á korti hvar þeir voru staddir þegar þeir sendu síðast punkt.

Hvað um það – ég tróð twitter straumnum hérna til hliðar í síðuna hjá mér og ætla að prófa þetta og sjá hvort ég þekki eitthvað twitter lið.

Leave a Reply