KFC í kvöld?

Óflokkað 15 April 2008 | 0 Comments

Það eru 45 þúsund kjúklingar á hverja manneskju í heiminum. Við, mannfólkið, erum að nálgast 7 billjónir – svo kjúklingarnir eru eitthvað um þrjúhundruð þúsund billjónir. ;)

Annars já, afbragðs helgi! Skemmtum okkur bærilega þarna á Akureyri. Þetta með GPS punktana virkaði ekki alveg sem skildi, þetta verður notað betur seinna sjálfsagt. Þegar á akureyri var komið var skellt sér strax á æfingu hjá strákunum. Eftir það var svo bara haldið á gott norðlenskt fyllerí. Laugardagsmorguninn tók ég svo reyndar uppá því að fá bílinn Kidda lánaðann og renndi yfir í Skagafjörðinn þannig að úthaldið var ekki mikið laugardagskvöldið – ég rétt entist út smá gítarpartý eftir keppnina áður en aðrir fóru í bæinn.

Keppnin var ágætis skemmtun, þótt sum atriðin hafi verið jafn leiðinleg og önnur voru skemmtileg. Flutningurinn þarna í KA heimilinu hljómaði reyndar margfalt betur hjá mörgum atriðunum en þegar maður horfði á þetta aftur í útsendingunni. Stemningin skemmdi síðan ekki fyrir – en úrslitin voru alveg útí hróa hött. Furðulegur kliður sem kom meira að segja um allann salinn, stemningin nánast dó.

Annars er það bara vinnan núna, nóg að gera á öllum vígstöðvum. Binni meira að segja að koma okkur útí smá bissnes sem verður forvitnilegur.

Meira af því síðar ;)

Leave a Reply